Exhibitions
Hlýnun // Krístín Pálmadóttir // 20/09/14-05/10/14 //
Afmælissýning Íslenskrar Grafíkur // 23.08.14-28.09.14
Félagið íslensk Grafík verður 45 ára.
Í tilefni afmælisins verður efnt til samsýningar félagsmanna í í Artóteki – sýningarsal Borgarbókasafnsins – og verður opnunin á menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst n.k. kl. 18:00.
Félagið Íslensk Grafík (einnig kallað Grafíkfélagið) var stofnað í núverandi mynd árið 1969 en var upprunalega stofnað árið 1954. Meginliðurinn í starfsemi félagsins hefur lengst af verið sýningarhald af ýmsu tagi, einkum sýningar á verkum félagsmanna innan lands og utan og útgáfa kynningarrita um íslenska grafíklistamenn og verk þeirra. Það hefur líka gefið út möppur með verkum félagsmanna og þannig stuðlað að aukinni dreifingu grafíklistar. Félagið hefur sömuleiðis staðið að kynningu á erlendri grafík hérlendis. Í félaginu eru í dag yfir 70 listamenn. Félagið rekur sýningarsal og verkstæði í Hafnarhúsinu í Reykjavík. Þar verður opið hús á menningarnótt frá kl.15- 20, áhugaverð sýning á verkum íslenskra og bandaríksra listamanna og listamenn að störfum.
Björg Þorsteinsdóttir var nýverið útnefnd heiðursfélagi Í.G. og verða verk hennar í öndvegi á sýningunni.
Sýningin verður opin á opnunartíma Borgarbókasafnsins.
Íslensk grafík & Boston Printmakers
Samstarf og samsýning Íslenskrar grafíkur og Boston Printmakers 2014.
Í tilefni Menningarnætur og 45 ára afmælis félagsins Íslensk grafík stendur mikið til í vikuna 18.-24. ágúst. Félagið tekur á móti bandarískum grafíklistamönnum úr Boston Printmakers Association sem koma gagngert til landsins til að njóta menningar, samfagna íslenskum félögum sínum á tímamótunum og kynna grafíklistina.
Efnt hefur verið til margháttaðs samstarfs, unnið verður sameiginlega á verkstæði félagsins þessa viku og á Menningarnótt og jafnframt verður opnuð samsýning félaganna í sýningarsal Grafíkfélagsins í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu (gengið inn að norðanverðu). Sýningin verður formlega opnuð þann 21.ágúst n.k. kl. 17 og stendur til 15. september.
Opið er fim-sun kl. 14-18.
Samstarf félaganna heldur svo áfram á erlendri grundu, annars vegar verður opnuð sýning á verkum beggja félaga í Belmont Gallery í Belmont Massachusets í október og í Scandinavian Centre á Boston svæðinu í nóvember eingöngu með íslenskum grafíkverkum. Jafnframt verður gefin út sameiginleg grafíkmappa á næsta ári. Samstarf félaganna og skipulagning er að undirlagi Bob Tomolillo sem hefur oftsinnis komið til Íslands enda kvæntur íslenskri konu Önnu Magnúsdóttur Tomolillo.
Á Menningarnótt verður verkstæði félagsins eins og oft áður opnað upp á gátt frá klukkan 15-20 og verða listamenn að störfum með kynningar á ýmsum aðferðum í grafík sem áhugavert er að kynna sér.
//
The Icelandic Printmaking Association and The Boston Printmakers collaborative project and exhibition.
Boston Printmakers are visiting us this fall and will exhibit with us at our gallery from August 21st – Sept. 15th. The opening reception will be on August 21st at 5pm. After that the gallery will be open from thursday-sunday, from 2pm-6pm. The trip is organized by Bob Tomolillo who is an active member of Boston Printmakers and is also married to the icelandic Anna Magnúsdóttir Tomolillo.
On Reykjavík’s Culture Night (August 24th) Boston printmakers will do demonstrations for the public between 3pm-8pm. Our studio and gallery will be wide open through those hours and everyone is welcome.
Our collaboration with the Boston Printmakers will continue to the west at the Belmont Gallery in Belmont Massachussets in oct. 2014 and then at The Scandinavian Centre in Boston.
Innviðir // Infrastructure // 19.07.14 – 03.08.14
Beta Gagga
Edda Ýr Garðarsdóttir
Elin Gudmundardottir
Halla Dögg Önnudóttir
Hlaðgerður Íris Björnsdóttir
Hrund Johannesdottir
Karen Ósk Sigurðardóttir
Lovísa Lóa Sigurðardóttir
Margrét M. Norðdahl
Sandra María Sigurðardóttir
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir
Þórunn Inga Gísladóttir
Opnunartími sýningar
19.júlí til 3 ágúst
fim-sun kl 14-18.
Þræðir // Elva Hreiðarsdóttir // 03.07.14-13.07.14
Closing Time // Rasmus Danø // 01.06 – 14.06
Closing Time
An Exhibition by Rasmus Danø (dk) at IPA Gallery 01.06 – 14.06 2014
The exhibition Closing Time is a direct extension of Danø’s latest solo show Open Barrier at Norwegian Printmakers Gallery in Oslo, Norway. In the show Danø mainly points on the western culture’s double standard: We preach freedom and openness at the same time as the individual increasingly gets subjected to surveillance and attacks on its personal freedom. This he illuminates through visual cues and textual statements all with an open structure. One statement or picture grabs the next and creates a flow of analog information. The wiever becomes, through his or hers own personal experiences, hereby an pawn in a bigger game.
As a main motif Danø often use the Landscape to describe a sence of a place where everythingbegins or ends, and use it as metaphor and/or a symbol that binds the different expressions together. Thereby the Landscape has a double feature of his works, both as a specific landscape and as a reference to culture, mind and language.
Rasmus Danø(1974) works with a wide range of materials such as painting, sculpture, drawing and installations but in this exhibition he will only show graphic works. Danø lives and works in Copenhagen, Dk. Educated at The Royal Academy of Fine Arts in Denmark 1995-2001. Artist webpage; http://www.siofc.com
Margrét Jónsdóttir // 10/5/14-25/5/14
Laugardaginn 10. mai klukkan 17. opnar listmálarinn Margrét Jónsdóttir sýningu í Grafíksalnum Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. Listakonan veltir fyrir sér tilgangi myndlistar í heimi sölumennsku, markaðshyggju og framleiðslu. Þar sem firringin er allsráðandi, lífsstarfið einskins metið og eins mann dauði er annars brauð. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl.14-18 og lýkur 25. maí.
Ragnheiður Guðmundsdóttir//Endurfæðing hjartans//Rebirth of the Heart
Í Garðinum / Rut Rebekka / 8.Mars-23.Mars 2014
Hún hefur stundað myndlist í 40 ár og haldið 20 einkasýningar, á Kjarvalsstöðum, í Hafnarborg, Norrænahúsinu, Gallerie Gammel Strand Kaupmannahöfn, Hamar Kunstforening Noregi , Piteå Kunstforening Svíþjóð og fleiri stöðum. Tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin er opin þriðjud-sunnudaga kl 14-18 og endar sunnudaginn 23 mars.












