SAMRÆÐUR / DIALOGHI

// english below //

SAMRÆÐUR / DIALOGHI

Valin verk frá ítalska félaginu um samtímagrafík

10.–26. júlí 2026 | Grafíksalurinn, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 (hafnarmegin), 101 Reykjavík

Íslensk Grafík, Félagið Íslensk grafík (IPA) hefur ánægju af að kynna SAMRÆÐUR / DIALOGHI, sýningu á völdum verkum frá félagi ítalskra samtíma grafíklistamanna (Incisori Contemporanei), sem opin verður frá 10.–26. júlí 2026 í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu,Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík.

Sýningin inniheldur verk eftir samtímagrafíklistamenn frá Ítalíu og kannar grafíkina sem vettvang samræðna á milli listamanna, hefða, tækni og menningarheima. Með fjölbreyttu úrvali verka varpar sýningin ljósi á lífskraft og nýsköpun samtímagrafíkur og eflir listræn tengsl og menningarsamskipti á milli Ítalíu og Íslands.

Þetta er fyrsti hluti menningarskipta milli samtakanna tveggja, en síðari hluti verkefnisins fer fram á Ítalíu árið 2027 þegar verk íslenskra grafíklistamanna verða kynnt ítölskum áhorfendum. 

Gestir munu kynnast fjölbreyttri samtímagrafík sem sýnir bæði tæknilega kunnáttu í fjölbreyttum aðferðum listformsins og persónulegar listrænar raddir. Verkin veita innsýn í fjölbreytileika og auðlegð ítalskrar grafíklistar og skapa jafnframt grundvöll fyrir nýjar samræður við íslenska listamenn og áhorfendur. 

Opnun sýningarinnar verður fimmtudaginn 9. júlí klukkan 18:00. 

Sýningin verður opin frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14 til 17.

Sýningunni lýkur með lokaviðburði sunnudaginn 26. júlí, þar sem Rósa Björg Jónsdóttir, heiðursræðismaður Ítalíu á Íslandi, verður sérstakur gestur.

SAMRÆÐUR / DIALOGHI fagnar þeim menningartengslum og skapandi samskiptum sem liggja að baki samstarfi milli íslenskra og ítalskra grafíklistamanna og undirstrikar mikilvægi listarinnar sem brúar milli ólíkra menningarheima.

Upplýsingar um sýninguna

SAMRÆÐUR / DIALOGHI

Valin verk frá ítölsku samtökum samtímagrafíklistamanna

Dagsetningar: 10.–26. júlí 2026

Opnun: Fimmtudagur, 9. júlí, kl. 18:00 Sýningarlok: Sunnudagur 26. júlí, kl. 18:00

Opnunartími: Fimmtudagur–sunnudagur, kl. 14:00–17:00

Staðsetning: Grafíksalurinn

Tryggvagata 17 (hafnarmegin) 101 Reykjavík, Ísland

//

SAMRÆÐUR / DIALOGHI

Selected Works from the Italian Association of Contemporary Printmakers

10–26 July 2026 | IPA Gallery – Grafíksalurinn, Reykjavík

Íslensk Grafík, The Icelandic Printmakers Association (IPA) is pleased to present SAMRÆÐUR / DIALOGHI, an exhibition of selected works from the Italian Association of Contemporary Printmakers (Incisori Contemporanei), on view from 10–26 July 2026 at IPA Gallery – Grafíksalurinn, Tryggvagata 17 (harbour side), 101 Reykjavík.

Bringing together contemporary printmakers from Italy, the exhibition explores printmaking as a space for dialogue between artists, traditions, techniques, and cultures. Through a diverse selection of works, SAMRÆÐUR / DIALOGHI highlights the vitality and innovation of contemporary graphic art while fostering artistic exchange between Italy and Iceland.

This is the first part of a cultural exchange between the two associations, the second of which will see Icelandic printmakers exhibit in Italy in 2027. 

Visitors will encounter a range of contemporary printmaking practices that demonstrate both technical excellence and individual artistic voices, offering insight into the richness of the Italian printmaking scene and encouraging new conversations with Icelandic audiences and artists.

Private View will take place on Thursday, 9 July at 6pm. The exhibition will be open Thursday to Sunday 2pm to 5pm.

The exhibition will conclude with a finissage on Sunday, 26 July at 6pm where Rósa Björg Jónsdóttir, Honorary Consul of Italy in Iceland, will be a special guest. 

SAMRÆÐUR / DIALOGHI celebrates the cultural connections that underlie the collaboration between Icelandic and Italian graphic artists.

Exhibition Information

SAMRÆÐUR / DIALOGHI
Selected Works from the Italian Association of Contemporary Printmakers

Dates: 10–26 July 2026
Private View: Thursday, 9 July, 6:00 pm Finissage: Sunday 26 July 6:00  pm

Opening Hours: Thursday–Sunday, 2:00–5:00 pm
Venue: IPA Gallery – Grafíksalurinn
Tryggvagata 17 (harbour side)
101 Reykjavík, Iceland