
Sýning Textílfélagsins, Staður, opnar í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu (hafnarmegin), fimmtudaginn 30. júlí kl 18-20
Sýningin stendur til 16. ágúst, opið fimmtudaga – sunnudaga kl 13-18.
Öll hjartanlega velkomin.
Samgöngur og nútíma fjarskipti hafa umbreytt skynjun okkar á fjarlægðum. Allt virðist innan seilingar og á sama tíma hefur einsleitni aukist. Rýmið sem við lifum í nú er því skilgreint á annan hátt en áður. Sýningin rannsakar hugtakið staður með áherslu á liti og efniskennd. Hver listamaður vinnur út frá sínum eigin hugarheimi og spyr: Hvað er rými og hvað er staður? Hvernig getur textíll vakið tilfinningar eða minningar tengdar ákveðnum stöðum? Verk sýningarinnar varpa ljósi á tengsl einstaklingsins við umhverfi, uppruna, minningar og menningu. Með efni, þræði, mynstri, áferð og handverki skapa listamennirnir persónulegar túlkanir á hugtakinu Staður.
Á sýningunni sýna 10 meðlimir Textílfélagsins verk sín:
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
Ásta Kristín Knight Þorsteinsdóttir
Bára Finnsdóttir
Bethina Elverdam Nielsen
Drífa Líftóra
Katalin Fóris
Olga Bergljót Þorleifsdóttir
Rósa Sigrún Jónsdóttir
Sunneva Ósk Jónasdóttir
Þorbjörg Þórðardóttir
