250 RIÐ

Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir · EssEmmEss(Sandra María) · Hlynur Helgason · Margrét M. Norðdahl
Hljóðverk: N65W14

Salur Íslenskrar grafíkur
Tryggvagata17

Opnun laugardaginn 21. nóvember kl. 17
Sýningarlok 6. desember

Opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 15 – 18

Í salnum hljómar tónn, 250 rið sem tekur á móti gestum og hverfur svo hægt úr vitundinni. Hann þagnar þó ekki, heldur verður hluti af rýminu, eins og andardráttur eða hjartsláttur. Sýningin dvelur á þröskuldi þess sem við skynjum og þess sem rennur saman við bakgrunninn.

N65W14 – Þröskuldur
Einhvers staðar milli landfræðilegra hnita og listrænnar sjálfsmyndar liggur N65W14. Hljóðlandslagið Þröskuldur fyllir salinn sem tónn sem fyrst er heyrður og svo ekki lengur. Tónlistin stendur sjálfstæð, óháð skapara sínum. Hana má hlusta á án þess að vita hver stendur að baki henni.

Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir
Formið losnar af fletinum. Samhverfa og endurtekning byggja upp myndir sem virðast stíga fram í rýmið. Í nýjum lágmyndum úr gifsi taka ljós og skuggi við. Það sem sést og það sem leynist handan þess, eiga í hljóðlátu samtali.

EssEmmEss
Birta og litir Seyðisfjarðar fylgja henni inn á strigann. Verkin verða til í ósjálfráðu ferli, á mörkum hins abstrakta og fígúratífa. Þar mæta formúlur efnafræðinnar því sem aldrei verður mælt: ást, tengslum og því sem gerist á milli fólks.

Hlynur Helgason
Aukastafir tölunnar pí ráða för. Sextán rendur vatnslitar, hver afmörkuð með blýanti og hver með sína breidd. Innan reglunnar fær vatnið að flæða frjálst, og úr verður myndheimur þar sem reikningur og náttúra anda saman.*

Margrét M. Norðdahl
Línan milli lokaðra augnloka. Augnablikið áður en andað er frá. Bilið milli tveggja tóna og lokaðra vara. Að vera ekkert, finna ekkert. Bara smá.

Aðgengi er gott í salinn.

Öll velkomin.