
Soffía Sæmundsdóttir – Vetrarferð / hillingar
Laugardaginn 31. október milli klukkan 17 og 19 opnar Soffía Sæmundsdóttir sýninguna Vetrarferð / hillingar í Grafíksalnum sýningarsal
félagsins Íslensk grafík Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 hafnarmegin. Þar sýnir hún verk á tréplötur, striga og pappír unnar á undanförnum tveimur
árum þar sem samspil þeirra miðla er dregið fram með áherslu á þrykkið.
Sýningin mun standa til 15. 11. 2026
Opið fim-sun klukkan 14-17
Öll hjartanlega velkomin.
“ Í grafíkverkum mínum leyfi ég oft tilviljun að ráða för. Það hvað skilar sér af tréplötunni á pappírinn getur verið erfitt að stjórna en ég legg upp úr því handgerða og ófullkomna. Ég lít á tréplöturnar sem sjálfstæð verk en nota pappírinn til að ná dýpt og taka af handstýringuna. Þessi verk sem ég sýni hér hef ég unnið ýmist úti í náttúrunni eða á afmörkuðum tíma á Korpúlfsstöðum, á Eyrarbakka og á grafíkverkstæði Edwards Munch í Ekely, Oslo.”
Soffía Sæmundsdóttir (f. 1965) hefur um árabil verið virk í íslensku listalífi og er þekkt fyrir málverk sín á tréplötur. Hún nam grafík við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk MFA-gráðu í málun frá Mills College í Oakland í Kaliforníu á árunum 2001–2003. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur dvalið sem gestalistamaður á ýmsum stöðum, þar á meðal hjá Leighton Studios í Banff Center í Kanada, og Kunstkvarteret í Stamsund í Noregi auk vinnustofudvalar á grafíkverkstæði Edwards Munch í Ekely, Oslo í nóvember 2025. Hún hefur tekið þátt í ótal samstarfsverkefnum og hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir verk sín. Soffía segir að þegar manneskja er máluð inn í landslag, öðlist það sögu og merkingu. Það vekur tilfinningar og tíminn verður mikilvægur. Á undanförnum árum hefur hún beint sjónum sínum meira að eigin sögu og tengslum við landslag og staði, með aukinni áherslu á skrif og upplifun af náttúrunni – hvort sem er ein eða í samstarfi við aðra. Verkin einkennast af málverkum, teikningum, grafíkverkum og prentum sem byggja á náttúrunni, en efnisnotkunin er fjölbreytt og markviss
Press Release – Winters Tale / Illusions at Grafíksalurinn
On Saturday, October 31st from 5:00 to 7:00 PM, Soffía Sæmundsdóttir will open the exhibition Winters tale / illusions at Grafíksalurinn—The IPA Gallery, Tryggvagata 17, harbour site. There she shows work created over the past two years on wood panels, canvas and paper, highlighting the interplay between the paper and the matrix.
“In my graphic works, I often allow chance to take the lead. It can be difficult to control exactly what transfers from the wood panel or canvas to the paper, but I value the handmade and the imperfect. I view the wood panels as independent works in their own right, while using the paper to achieve depth and to relinquish some of the manual control. The work presented here were created either out in nature or during specific residencies at Korpúlfsstaðir, in Eyrarbakki,
and at Edvard Munch’s print studio in Ekely, Oslo.”
Soffía Sæmundsdóttir(1965)has been active in the Icelandic art scene for years and is known for her paintings on wooden panels. She studied printmaking at Iceland´s School of Art and Crafts and completed her MFA in painting from Mills College in Oakland, California 2001-2003. She has held numerous solo exhibitions and participated in group exhibitions at home and abroad. She has been an artist in residence at Leighton Studio´s in Banff Center in Canada, Kunstkvarteret in Stamsund Norway to name a few. She worked on new prints at Edward Munch Print Studio in Ekely, Oslo in November 2025. She has participatet in countless collaborative projects and has received numerous awards for her work. Soffia says about her work that when a person is painted into a landscape, it acquires history and meaning. It awakes feelings and time becomes important. In recent years, she has looked more into her personal history and connections with landscapes and places with an increased emphasis on writing and experiences of nature, either by herself or with others. Paintings, drawings, graphic works in editions or prints from nature characterize these works but the use of materials is varied and purposeful.
