ÞAN

ÞAN – Anna Hallin opnar sýningu í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu (hafnarmegin), Trygggvagötu 17

laugardaginn 10. október klukkan 14-17.

Sýningin stendur til 25. október og er opin frá fimmtudegi til sunnudags klukkan 14 – 18.

Sýningin ÞAN samanstendur af nýjum verkum – blekteikningum og abstrakt leirskúlptúrum.
Í blekteikningunum notar Anna blek í mismunandi litum og undirlagið er pappír af mismunandi
gerðum, þykktum og stærðum sem er valinn til að ná sem best fram því flæði sem hún sækist eftir,
sem er að dvelja í augnablikinu, láta ferðalagið stjórnast af umbreytingu andartaksins.
Ferlið við gerð skúlptúranna felur í sér að þrýsta efninu út að ystu mörkum í leit að jafnvægi milli
stjórnar og ófyrirsjáanleika, í bæði táknrænni og bókstaflegri merkingu.
Vinnuaðferðin við gerð bæði teikninganna og skúlptúranna er eins og dans á milli ásetnings og
tilviljunar – takturinn á milli þess að gefa og þiggja.

Anna Hallin er fædd í Svíþjóð en búsett í Reykjavík frá árinu 2001. Hún er með meistaragráðu í
keramik frá háskólanum í Gautaborg og í myndlist frá Mills College í Oakland í Kaliforníu. Anna
hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis og haldið einkasýningar á Íslandi, í
Svíþjóð, Finlandi og Þýskalandi, svo dæmi séu nefnd. Verk eftir hana eru meðal annars í eigu
Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Kópavogs, Safnasafnsins, Listasafns Reykjanesbæjar,
Listasafns Íslands., Fangelsismálastofnunar og Kirkjugarða Reykjavíkur.
Anna hefur hlotið fjölda styrkja og verðlauna – erlendis frá t.d. HIAP í Finnlandi, IASPIS í Sviðþjóð,
Trefethen Merit Scholarship í Kaliforníu, Barkenhoff Stiftung í Þýskalandi og hérlendis hefur henni
verið úthlutað listamannalaunum frá Menntamálaráðuneytinu og styrkjum frá Myndstef og úr
Myndlistasjóði.

“Eitthvað fer og kemur tibaka. Eitthvað fer og ætlar
að koma tilbaka. Eitthvað fer. Eitthvað kemur sem
aldrei fór. Hvort ertu í borg eða skógi? Heyrirðu í
skipsflautunum? Kalla þær ekki á þig? Heyrirðu í
trönunum? Eitthvað er langt í burtu en hér er líka
allt og stundum þarf sjónauka til að sjá það, marga
sjónauka; og nálaraugu til að rata leiðirnar út; og
ástarfund til að horfa rólega útum gluggann. Þarna er
hringtorgið. Þarna er krani. Þarna er jafnvægið. Anna
Hallin býður mér inní heim þar sem búið er að þurrka
út skriflegar útskýringar, menningarlegar,
vísindalegar, félagslegar, og ég myndi halda að myndi
vekja áhuga t.d. tilvonandi geimkönnuða – hún opnar
orðabækurnar og hleypir íbúum hennar út: hér leika þau
[orðin] lausum hala laus undan álagi eða einhverju
inní frjálsum MYNDheimi.”
(úr sýningarskrá: K.Ó.)