Stefnumót / Encounter

Opnun: Laugardaginn 18.apríl
Staður: Grafík salurinn, Hafnarhúsi, Reykjavík
Sýningartími: 18. Apríl – 3. Maí

Á sýningunni eru verk sem unnin eru upp úr mánaðardvöl á vinnustofu í Varanasi á Indlandi 2024. Verkin byggjast á sex ára rannsókn Elsu á litum og litarefnum, þar sem áherslan hefur verið á náttúrulegan, fundinn og staðbundinn efnivið, auk alkemískra ferla við litagerð.

Á Indlandi skoðaði Elsa meðal annars notkun hversdagslegra litagjafa í daglegu lífi. Upplifanir hennar og reynsla daganna í Varanasi framkölluðust í formi fundinna litarefna í leiðöngrum um borgina. Á sýningunni leggur hún áherslu á að líkamna efniviðinn sem hún safnaði þar og framkalla hann í tíma, rými og samhengi sýningarstaðarins. Það á sér stað stefnumót ólíkra staðhátta og menningarheima í marglaga upplifunum og efniskennd.

Elsa Dóróthea Gísladóttir hefur starfað að myndlist í þrjá áratugi. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1986–1990 og stundaði framhaldsnám við AKI í Hollandi 1991–1994. Hún hefur setið í stjórn Nýlistasafnsins og Myndlistaskólans í Reykjavík, starfað í úthlutunarnefndum á vegum SÍM og hlotið starfslaun listamanna.

Á síðustu árum hafa gjörningar verið mikilvægur hluti af myndlist Elsu. Sýningar hennar einkennast af umbreytingarferlum og gjörningatengdri úrvinnslu og framsetningu. Sýningin er opin miðvikudaga – sunnudaga, kl. 14:00 – 17:00