
Á Vetrarhátíð kynnir Íslensk grafík nýtt verk eftir Sigurð Atla Sigurðsson sem var útnefndur
listamaður Grafíkvina árið 2026. Verkefnið hefur verið í gangi allt frá 1994 með útnefningu
listamanna á borð við Braga Ásgeirsson, Georg Guðna og Ragnheiði Jónsdóttur. Jafnframt
því að vinna verk í upplagi fyrir félagið er Sigurði Atla úthlutað vinnustofudvöl á verkstæði
Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsi í heilt ár. Á Vetrarhátíð heldur Sigurður Atli opna vinnustofu í
Grafíksalnum þar sem hann sýnir ýmis nýleg verk í bland við eldri verk og gestum er því
boðið að skyggnast inn í vinnuferli listamannsins.
Opnun á Safnanótt föstudaginn 6. febrúar kl 17-20
Opið laugardag 7. febrúar og sunnudag 8. febrúar kl 14-17
AÐEINS ÞESSA HELGI
Titill: Tafla
Tækni: Leturprent
Stærð: 19,2 x 27,4 cm
Eintök: 70 (+10AP)
Tafla
“Verkið er unnið á japanskan pappír sem verður gegnsær þegar hann er hitaður. Helmingur
arkarinnar er hitapressaður með málmklisju. Þannig er verkið ein pappírsörk sem er bæði hvít
og gegnsæ. Jan Voss sagði mér einu sinni að einfaldasta form bókarinnar væri ein örk brotin í
tvennt. Einar fyrstu bækurnar voru tvær vaxtöflur bundnar saman í miðjunni. Þær voru
notaðar sem glósubækur þar sem upplýsingar voru ristar í vaxið og síðan strokaðar út með því
að hita það. Upplýsingarnar voru geymdar innra með fólki.” Sigurður Atli
Sigurður Atli Sigurðsson (f. 1988) er þekktur fyrir formhrein verk sem skoða þau mynstur
sem móta mannleg samskipti. Verk hans taka á sig form stórra myndaraða og innsetninga sem
taka yfir sýningarrýmið. Á ferli sínum hefur Sigurður Atli unnið með ýmsar grafískar
prentaðferðir og fengist við útgáfu bókverka. Sérþekking hans á þessu sviði hefur leitt hann til
að halda sýningar, kenna og stýra sýningum víða um heim, nýlega á Museum of
Contemporary Art Tokyo, Listasafni Ísafjarðar og á Listasafninu á Akureyri. Verk hans eru
m.a. í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Akureyrar, Listasafns Ísafjarðar og Arion Banka.
http://www.sigurduratli.com
http://www.islenskgrafik.is
GRAFÍKVINIR
Hvað er Grafíkvinur? Grafíkvinur er styrktaraðili Íslenskrar Grafíkur sem greiðir árlegt
áskriftargjald kr. 15.000,- og í staðinn fá Grafíkvinir boð á allar sýningar í Grafíksalnum og
fréttir af öllum öðrum viðburðum félagsins ásamt því að eignast árlega grafíklistaverk unnið
af sérvöldum grafíklistamanni hvers árs fyrir sig, félagsmanni eða gestalistamanni.
Listamaðurinn er tilnefndur af stjórn félagsins og vinnur listamaðurinn sérstakt listaverk fyrir
Grafíkvini









