NÝTT Á GÖMLUM GRUNNI

Gréta Mjöll Bjarnadóttir og Kristbergur Ó. Pétursson sýna saman í Grafíksalnum 14 feb.-2 mars. Opnun kl. 16.00 laugardaginn 14 feb. Saga, fortíð líf og náttúra er grunnur að listsköpun þeirra Grétu Mjallar Bjarnadóttur og Kristbergs Ó. Péturssonar sem sýna saman í Grafíksalnum. Einnig nýsköpunarleiðir með efni og miðla sem tengjast í fagurfræðilegu samhengi. Rætur listsköpunar þeirra liggja víða í tíma og rúmi, frá Grímsnesi til Hollands, frá bernskuárum og námsárum. Gömul skissuvinna er sjóður sem enn er sótt í, til upprifjunar, endurnýjunar og endurnýtingar. Nýtt er byggt á gömlum grunni.