Stiklur/Sticks – Gunnhildur Þórðardóttir

Sýningaropnun fimmtudaginn 26. október frá kl. 17 – 19.  í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 (hafnarmegin). Verið öll hjartanlega velkomin.

Sýningin stendur frá 26. október, til 12. nóvember.

Á sýningunni Stiklur með verkum eftir Gunnhildi Þórðardóttur eru ný verk bæði tví – og þrívíð verk auk þess eldri verk sem fá að slæðast með. Á sýningunni eru verk sem sýna eins konar stiklur eða brot eða búta af íslenskri náttúru auk þess sem stiklað er á stóru varðandi túlkun listamannsins á stóriðju og afleiðingum hennar á íslenska náttúru og upplifun. 

Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hnattræn hlýnun og hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr brotum, bútum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri eða úr hlutum sem fá nýtt hlutverk s.s. gömul húsgögn, geymslukassar, gardínur eða listaverk. 

Á sýningunni verður einnig nýjasta ljóðabók listamannsins til sölu, Dóttir drápunnar – ljóð úr djúpinu auk þess sem listamaðurinn mun lesa ljóð fyrir sýningagesti.

Gunnhildur Þórðardóttir er með MA í liststjórnun 2006, tvíhliða BA nám sagnfræði (listasögu) 2003 og listum frá Listaháskólanum í Cambridge UK og viðbótardiplómanámi í listkennslu bæði fyrir grunn – og framhaldsskóla frá Listaháskóla Íslands 2019. Hún hefur starfað við kennslu síðan 2014 og starfað í rúm tíu ár fyrir listasöfn bæði á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður í tuttugu ár og unnið trúnaðarstörf fyrir Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og félagið Íslensk grafík.

Hægt er að hafa samband við listamanninn gunnhildurthordar@gmail.com eða í síma 898-3419