Verið velkomin á Safnanótt föstudaginn 3. febrúar kl.19:00.
Á Safnanótt þann 3. febrúar nk. verður útgáfa hinnar árlegu Grafíkvinamyndar hjá Íslenskri grafík.
Listamaður Grafíkvina 2017 er Iréne Jensen og verða verk hennar kynnt í Grafíksalnum og er þér og gestum þínum boðið að hitta listamanninn og skoða verkið og bakgrunn þess og fræðast um starfsemi félagsins.
Þá verður gjörningurinn Skapandi skuggamyndir framinn í anda magnaðs myrkurs í averkstæðinu á milli kl. 20 og 21 með hjálp Safnarnæturgesta.
Sýningin er opin á laugardaginn 4. og sunnudaginn 5. febrúar frá kl.14-18.
Grafíkvinamynd 2017
Verk Grafíkvina árið 2017, “Framundan” er unnið af Iréne Jensen f.1953.
Verkið er unnið í vistvænu ferli og tæknin er photopolymer filmu æting (ImageOn filmu) sem er ljósnæm og ætt í mildri sódalausn í myrkraherbergi. Það er þrykkt af listamanninum sjálfum (multicolourplate) með sex ætingalitum frá Charbonnel á 300 gr. Hahnemühle grafíkpappír.Engin mynd verður nákvæmlega eins, E.V. edition various. Stærð myndar er 12×22 cm og pappírsstærð 20x28cm. Upplag verksins er 80 eintök.
Viðfangsefni Iréne er manneskjan í mismunandi umhverfi og tíma, oftast á leiðinni til að finna eitthvað “nýtt og áhugavert” og líka finna ró innra með sér. Þemað er, Gangur lífsins.
Myndlistarnám; 1976-1977 Grundskolan för konstnärlig utbildning, Stokkhólmur, Svíþjóð. Iréne flutti tíl Íslands 1988, hof nám 1990 og lauk því 1994 frá Grafíkdeild Myndlista- og handiðaskóla Íslands. Hún hefur eingöngu unnið að myndlist síðan, aðallega í grafík. Iréne hefur haldið 13 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim.